Sykurpúðablogg

28.05.2006 18:16:05 / helgid

Bombubí tjúna

Hellúúúúú.....

Ég vil byrja á því að óska Árna Árna og öðrum Sjálfstæðismönnum til hamingju með sigurinn í gær í kosningunum. Þó svo ég sé engan veginn sáttur með þetta þá óska ég þeim nú samt til hamingju, enda tóku þeir hina flokkana í óæðri endann.

Ég var að vinna á fullu í Salaskóla í gæslunni í gær í tengslum við kosningarnar hérna í Kópavogi. Eftir það fór ég óvænt með Kidda í Vogana á kosningavöku hjá E-listanum, en Biggi bróðir hans skipaði einmitt fyrsta sæti á listanum þar. Það er óhætt að fullyrða að E listinn hafi spilað gott mót  enda fengu þeir 57,7 % atkvæða. Ég, Kiddi, Einsi Dan og Marteinn keyrðum svo til Reykjavíkur og fórum við Kiddi og Einar í röðina á Óliver meðan að Marteinn fór bara heim að sofa, enda vinna daginn eftir. Eftir klukkutíma bið var okkur loksins hleypt inn og þá fóru hlutirnir að gerast. Guðfaðirinn var með eina ungfrú ísland dömu upp á arminn og tókst mér að leggja inn gott orð fyrir strákinn ;)

 

 



Kristinn Tómasson knattspyrnuhetja úr Árbænum tók áskorun frá mér á Óliver og drakk fullt glas af kertavaxi með glæsibrag, ánægður með peyjann. Á Óliver mátti sjá þessa helstu kappa í dag....Raul einkaþjálfari var hress, Jói Fel var flottur í röðinni og Einsa Dan gerði gott!

 

 



Kvöldið var virkilega skemmtilegt og vonandi að fleiri slík líti dagsins ljós í sumar!

Duran Duran skrifaði
Fór Einsi í latabæ?
The Godfather skrifaði
Ég þakka stuðningin. En mér fannst samt eins og þú saknaðir þess eitthvað að vera á lausu og bulla í kjellingunum. Fínt að hafa svona wingmen sem sér um alla dirty vinnuna. Maður nýtur bara ávaxtanna. ;)
Oliver skrifaði
Góð saga Gunni, góð saga!!!
Árni Árnason skrifaði
Takk fyrir það Helgi minn. Ég veit að þú ert svekktur yfir því að Reykjanesbæjarlistinn vann ekki stórsigur. Málið er bara að Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið á góðri siglingu hérna í Reykjanesbæ, enda ber bærinn þess merki. Bætt ímynd, bullandi uppbygging, ný sóknarfæri ungs fólks með stórbættri aðstöðu til fjarnáms og auðvitað háskólanám í boði. Meiri árangur í samræmdum prófum svona má áfram telja. Þett vildir þú ekki styðja. Helgi minn það var bara ekki grundvöllur fyrir framboði feminista í Reykjanesbæ, hérna er öllum jafnréttisþáttum samfélagsins fylgt eftir af Sjálfstæðisflokknum.
Helgi Þór skrifaði
Það voru nú markvíslegar ástæður fyrir því að ég kaus ekki sjálfstæðisflokkinn...meðal þeirra má nefna: 1. Bærinn er stór skuldugur(ekki neita þeirri staðreynd). Selur allar eignirnar sínar og leigir þær tilbaka, skil ekki hvernig sé hægt að græða á því 2. Leikskólagjöld hækkuðu um 40% á síðasta kjörtímabili 3. Fjármagn til fatlaðra dróst saman um 30% á síðasta kjörtímabili auk þess sem keyrsla fyrir fatlaða minnkaði til muna. Annars þýðir nú lítið að ræða við þig um pólítik...sérð ekkert nema blátt ;)
sjabbs skrifaði
Keyrslan minnkaði sökum þess að fleiri tóku þann pól í hæðina að ganga... það má því segja að sjálfstæðisflokkurinn hafi gert kraftaverk!
Helgi Þór skrifaði
já sjabbi minn! fínasta saga hjá þér ;) hehehehehe hvenær fæ ég abercrombie bolinn sem þú keyptir handa mér í NY???
sjabbs skrifaði
never... þú veist að þessir bolir eru allir "muscle" gerð og það þýðir því ekkert fyrir hræ eins og þig að vera í sona. Bara hjélmassaðir einstaklingar eins og ég sem "makes these close look good" eins og máltakið segir...
Árni Árnason skrifaði
Reykjanesbær skuldar, það er á hreinu, enda var tekið af ábyrgð á lífeyrisskuldbindingum fyrir rúman milljarð. En mörg sveitarfélög velta þessu eins og snjóbolta á undan sér og taka þetta ekki fram í ársreikningum og eru því að sýna betri fjárstöðu en hún raunverulega er. Þetta er búið að borga í Reykjanesbæ þannig að unga fólkið sem mun taka við stjórnartaumunum eftir einhver ár þurfa ekki að takast á við fortíðardraug lífeyrisskuldbindinga. Það má ekki gleyma að Reykjanesbær er á mesta uppbyggingarskeiði sínu. Mikil eftirspurn hefur kallað á hraðari skipulag, meiri gatnagerð og annað og eins og oft er sagt þá kostar pening að græða pening. Það er ekki flutt inn í nærri helmingin af þeim íbúðum og húsum sem verið er að reisa í Reykjanesbæ. Samt hefur fólksfjölgunin verið hlutfallslega mest í Reykjanesbæ, útsvarið hækkaði um 220 milljónir á síðasta ári og á síðustu tveimur árum hafa 62 ný fyrirtæki komið til Reykjanesbæjar. Á meðan að þetta er allt að springa út hafa skuldir samt sem áður verið greiddar niður um 1300 milljónir. Varðandi sölu eigna þá verður þú að athuga að Reykjanesbær á 35% í félaginu og á þar stjórnarmann. Það er ekki eins og við séum að leigja af einhverjum út í bæ. Giltnir er nú eitt sterkasta fyrirtæki landsins og það er þátttakandi í þessu félagi, Garðabær, Sandgerði, Vogar, Sparisjóður Mýrasýslu og fleiri og fleiri. Í þessu félagi fara sérfræðingar með málin og eru að byggja mun ódýrara núna en fyrir 6 -7 árum og fá hagstæðari lán. Félagið á eignir fyrir marga milljarða og hlutdeild okkar þar telur því milljarða líka. Þetta er svipað og við eigum hlut í Hitaveitu Suðurnesja upp á nokkra milljarða og verðmæti þess fyrirtækis fer batnandi. Þannig að það er meira ruglið að segja að Reykjanesbær eigi ekkert. Ég er stoltur af því að vera blár Helgi minn.
ÖK skrifaði
Ég ætlaði mér að kjósa Vinstri Græna enda hefur sjaldan eða aldrei komið upp jafn öflugt og fagurt framboð hér í bæ. Eftir að hafa horft á NFS þáttinnm margfræga þar sem oddvitar flokkanna létu ljós sitt skína þá kolféll ég fyrir vinstri grænum. Hvílíkur leiðtogi, hvílíkar hugsanir og staðfesta. Það eiga allir að lifa á bleiku skýi með jónu í annari og kaldan Budweiser í hinni. Lífið er ljúft og Þorvaldur Örn bæjarstjóri. Reynir Valbergsson hefði líka alveg geta haft X-D næluna í barminum enda fór tunga hans svo langt upp í afturenda Árna bæjarstjóra að glytta mátti í hana út um nefhholurnar. Ég setti X við D enda annað ekki boðlegt í stöðunni. Vinstri grænum óska ég til hamingju með 5% sem var eiginlega sigur fyrir Deep Jimi og co. Áfram D PS: hvað ert þú að kvarta yfir hækkunum á leikskólagjöldum Helgi. Þú ert kominn á fast og varst nú ekki farinn að kafa í svo ungt?? Nei, grunnskólapíurnar voru mikið meira en nóg.
Hefner skrifaði
hahahahahahahhaha snillingur! Hvernig er það Ök, á ekkert að fara að láta sjá sig í höfuðborginni eða? Hver á ég að senda tissjú Árni minn? Hvenær verður annars Westari?
Haraldur Axel Einarsson skrifaði
Mér sýnist sem að þú hafir ágæta þörf fyrir þetta tissjú þitt Helgi minn. Lifið heil X-D
Helgi Þór skrifaði
ekki er ég vælandi hérna...bennti bara á nokkrar ástæður fyrir því að ég kaus ekki sjálfstæðisflokkinn
Árni Árnason skrifaði
Helgi minn, ég svaraði að hluta til gagnrýni þinni á Sjálfstæðisflokkinn - og það er nú svo að þeir sem verða að éta ofan í sig vitleysuna og geta ekkert sagt grípa til ráða eins og smábörn - eins og þú gerir, ég er bara ekkert vælandi - ég öllu frekar pirraður hvað það gengur erfiðlega að berja í þig vitið drengur ! Tárin eru ekki á næsta leiti hjá mér - gleðitárin kannski - ekker annað ! ÖK og Halli Axel, takk fyrir ykkar stuðning, það er gott að vita að það er einhver með heilan í lagi í þessum vinahóp. ahahhahahaah
Gunnhildur skrifaði
sammála Árna Árnasyni... enda mjög gott svar!
Helgi Þór skrifaði
Það má ekki slá á létta strengi og þá er maður bara smábarn. Þú ert greinilega eitthvað touchy kallinn minn. Ég hef gert þér grein fyrir því afhverju ég kaus ekki Sjálfstæðisflokkinn með nokkrum punktum. Ég hef sagt það áður og segi það enn, þú sérð ekkert nema blátt og þess vegna hef ég nú lúmskt gaman af því að rökræða við þig. Ég þarf ekki að éta eitt né neitt ofan í mig enda hef ég oft rætt við þig í síma um mína sjón á þessu máli. Þetta með tissjúið átti nú að vera smá grín en greinilegt að þú tekur þetta eitthvað nærri þér Árni minn. Varðandi það að þú hafir svarað hluta af gagnrýninni þá ert þú bara að svara einum lið af þessum þremur. Þú svarar ekki hinum tveimur enda er það hárrétt sem ég set þar fram.Þannig að ég skil ekki alveg hvað þú meinar að ég þurfi að éta ofan í mig alla vitleysuna....ekki
Helgi Þór skrifaði
varðandi leikskólagjöldin Örvar minn þá hef ég einungis hagsmuna Sævars félaga míns fyrir leiðarljósi. Hann þarf fljótlega að panta pláss á Heiðarseli :) Einnig tel ég liklegt að Marteinn þurfi pláss fyrir þríbura innan nokkurra ára
Árni Árnason skrifaði
Leikskólagjöld voru hækkuð það er alveg rétt, ástæðan var svo að kostnaðnum við eitt barn var skipt á milli foreldra og bæjarfélagsins, ég man ekki hvort þetta var 40% foreldri 60% bæjarfélagið. Nema hvað í nokkur ár hækkaði verulega kostnaðurinn við hvert barn án þess að Reykjanesbær hækkaði leikskólagjöld og var því prósentuviðmiðið að hækka hjá Reykjanesbæ en minnka hjá foreldrum. Þetta var svo leiðrétt í sömu prósentutölu aftur og þá hækkaði hlutu foreldra. Strax í haust lækka leikskólagjöld um 30% til að koma til móts við barnafjölskyldur. Þar að auki ætti Marteinn að vera heppinn með þríburana sína, því ef þú ert með tvö börn á leikskóla þá borgaru bara fyrir 1,5 pláss og þriðja er ókeypis. Þar að auki eiga foreldrar val á að vera lengur með barninu sínu heima áður en það fær inn á leikskóla - því Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að borga 30 þús. til þeirra sem vilja frekar vera heima við en að setja litlu krílin til dagmömmu. Mér finnst þetta vera nokkuð gott bara - annars er bara öruggast að nota smokkinn og sleppa við þríburanna !! ehehe - ég he eitthvað misskilið þetta hérna því að ég hélt að við mættum báðir skjóta á hvorn annan, ekki bara þú
Marteinn skrifaði
Ertu að segja að þetta hafi verið slys að konan mín gangi með þríbura ? Það er alldrei slys þegar kona gengur með barn undir belti !!! Mér fannst það gáfulegasta sem Sjálfstæðisflokkurinn gerði var að fjárfesta í Vikingabátnum á 12-millur og listaverkunum hans Árna Jonsen...Meirasegja Vestmannaeyjar vildu ekki kaupa þetta af honum..... Afhverju var þetta keypt og tilhvers ? Annars er ekki hægt að taka það af meirihlutanum að það er frábær uppgangur bænum og mikið að gerast. Að eyða 2.millum í þetta merki við Reykjanesbrautina fannst mér líka allt í lagi enda heppnaðist það algjörlega! Árni finnst þér að Reykjanesbær ætti að sameinast öðrum bæjum ? Það var reyndar fellt í haust
ÖK skrifaði
Eins og flest allir fór ég og kaus sl laugardag. Það er mín skylda enda útúrslitin gamalmenni sem börðust fyrir þessum rétt okkar með kjafti og klóm. Fyrst mátti enginn kjósa, svo aðalsmenn nú þá loks allir karlmenn og svo (því miður) kvenmenn. Það er ógeðslega leiðinlegt á kjörstað. Þungt yfir og allir eitthvað voðalega alvarlegir. Það mætti vera léttara yfir fólki, jafnvel selja eitt og eitt skot fyrir utan klefana. Ég mætti í mínu næst besta pússi ( pólóbol og flauelisbuxum, brúnum) og renndi mér að einum í röðinni á kjörstað og sagði “ekki ætlaru að kjósa Vinstri Græna ræfillinn þinn” og hló dátt enda vissi ég að viðkomandi var harður framsóknarmaður. Það var sussað í mér eins og ég væri glæpamaður. Einhver miðaldra tussa ( afsakið orðbragð en hún var tussuleg ) hreytti í mig óhnotum um að ég ætti að taka þessu alvarlega og tala ekki svona á kjörstað. Þú mátt ekki hafa áhrif á kjósendur, sagði hún. Hvað á ég að hafa áhrif á gall harðan framsóknarmann? + mér er slétt sama hvað aðrir kjósa, svo lengi sem það er ekki X-G! Mér var ekki skemmt, og langaði mest að löðrunga tæfuna. ( sem var note bene með nælu merkta X-G ) Taldi uppá 10 og ákvað að skyrpa bara á hana, lét það duga. Saug duglega uppí nefkvikuna og laumaði hrákubrík á kápuna hennar ógeðslegu. Enginn sá neitt, en slumman var svona sigurtákn fyrir mig. Þegar ég svo kom út þá stóð kellingin þar og tók í höndina á mér og baðst forláts ef hún hefði nú æst sig en það væru nú ákveðnar reglur á kjörstað. Ég horfði niður á kápuna og sá að slumman var enn á sínum stað. Ég brosti létt til hennar og sagði henni að eiga góðar stundir...í helvíti. Hún heyrði reyndar ekki “í helvíti” enda rétt muldraði ég það... jæja minn flokkur vann svo kosningarnar, kom engum á óvart og spennan var lítil sem engin. Allir sem voru með mér á kosningarnótt fylgdust spenntir yfir gangi mála í öðrum sveitarfélögum. Mér var slétt sama. Mér fannst reyndar magnað að sjá að kjörsókn var 100% í Vogunum, 13 atkvæðin skiluðu sér í hús. Talningu atkvæða lauk hinsvegar ekki fyrr en um 3 um nóttina, enda sofnaði mamma hans Matta sem er teljarinn. Lifi Árni Árna, Sigfússon, Johnsen og Árni Júll
Árni Árnason skrifaði
Sæll Matti, fyrsta lagi vil ég benda á að víkinsgaskipið Íslendingur kostaði bæjarfélagið 6 milljónir en ekki 12 millur, um er að ræða hlutafélag sem mörg fyrirtæki koma að. Varðandi sameiningu þá var ég með sameiningu og er ennþá. Ég tel að sveitarfélögin Garður, Sandgerði, Vogar og Reykjanesbær hefðu átt að sameinast. Ég er sannfærður um að þessi byggðalög væru sterkari sem ein heild. Hvað varðar Voga, þá er byggðin í innri Njarðvík komin langleiðina til Voga og heldur áfram í þá átt. Þetta er mín sannfæring, en hún kom því miður ekki upp úr kjörkössunum.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.