Þetta var nú meiri helgin!
Stóð til að sigra miðbæ Reykjavíkur á eurovisionkvöldinu en
þau plön fóru rakleiðis ofan í klósettið (bókstaflega). Á
föstudagsnóttina byrjuðu herlegheitin og stóðu yfir til sunnudags,
þannig að helgin hjá mér fór í að liggja upp í rúmi og horfa á stöð
2 bíó! Nóg um það....
Það eru allir að fara til útlanda finnst mér, Sjabbi í USA og
svo fer Hildur Halla stjúpsystir til USA á morgun ásamt því að
Gunni Örn fer til Dk. En hann mun hefja sigurgönguna í Tailandi á
næstu dögum.
Annars er það helst í fréttum að Bergþóra hans Kidda er að
fara að keppa í Ungfrú Ísland núna á morgun og hvet ég alla til að
fara á www.ungfruisland.is og kjósa
hana! Hún er virkilega lagleg stelpan og hef ég alltaf sagt að
Kiddi sé að spila langt fyrir ofan sína eigin getu
J
Svo fer vonandi að styttast í þessa blessuðu
einkunnir....
Þetta verður fínasta sumar held ég bara. Eva og Matti verða í
Brúðkaupsþættinum JÁ ásamt því að koma fram í Innlit/Útlit. Hvað
getur maður gefið svona fólki í brúðkaupsgjöf sem á allt?
Einhverjar hugmyndir?