Sykurpúðablogg

20.12.2006 21:05:58 / helgid

www.123.is/hefner

Ný síða

www.123.is/hefner

muna að breyta linkunum

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 12:09:39 / helgid

Ný Síða

Sælar
Nú stendur til að skipta um síðu enda blog.central orðið " last season ".......ég mun koma griðarlega sterkur til leiks þá......En fyrst er það skólinn! svo kemur hitt

LaTeR

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.11.2006 22:07:33 / helgid

Birthday boy

Úbúsíííí.....

Þessi helgi var mjög merkileg fyrir margar sakir...Liverpool vann leik, Gunni keypti sér nýjar gallabuxur og svo eru nákvæmlega 25 ára síðan ég kom í heiminn. Enginn vinna líkt og síðustu helgi þannig að afslöppun dauðans var á næsta leyti. Ég gaf það nú út fyrir mánuði síðan að næsta djamm hjá mér yrði 9.des þegar að 2.flokks hittingurinn verður en mátti ég éta þau orð ofan í mig í gærkvöldi. Það var bara hreinlega ekki hægt að neita hvolpaaugunum í Einsa Dan og staðreyndinni að Gunni væri kominn í glæ nýjar gallabuxur úr Gallery 17. Kvöldið var frábært og endaði ég svo heima í trekant með Einsa og Gunna líkt og svo oft áður......

 

 



Hápunktur kvöldsins var svo þegar að ung snót kom að máli við mig á Óliver og spurði mig hvar Þrífóturinn væri.......það eru augljóslega einhverjir að lesa bullið hérna.......

Ég vil einnig þakka þeim fjölmörgum sem sendu mér afmæliskveðjur í dag....þeir sem hins vegar gleymdu að senda mér afmæliskveðjur, ég veit hvar þið eigið heima ;)


» 12 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 12:06:26 / helgid

Siðblinda og della og random lyfja check hjá ÍSÍ

Þó svo ég og bróðir minn séum eins og svart og hvítt hvað varðar flesta hluti þá get ég ekki annað en verið sammála kauða varðandi Árna Johnsen. Hér getur fólk lesið afhverju svo er........

http://www.haestirettur.is/domar?nr=1221

 Fjárdráttur...Umboðssvik...Mútur...Rangar skýrslur...Brot í opinberu starfi...Er þetta virkilega maður sem við viljum fá á Alþingi? Svo segir hann eins og fram kom á mbl.is að þetta hafi bara verið tæknileg mistök sem engin hafði tapað á. Er maðurinn veruleikafirrtur...Ef þetta kallast ekki siðblinda á háu stigi þá heiti ég Sævar Sævarsson......

 En nóg um það...

Allt vitlaust í handboltaheiminum þessa dagana eftir að 3 leikmenn Þróttar í Vogum mættu ekki í lyfjapróf eftir bikarleikinn á móti Stjörnunni síðastliðið þriðjudagskvöld. Leikur grunur á að þeir hafi  flúið fljótlega í seinni hálfleik þegar þeir urðu varir við lyfjaeftirlit ÍSÍ í stúkunni. Þetta ku vera í fyrsta skiptið sem leikmenn láta sig hverfa til að sleppa við lyfjapróf. Mikið var ég ánægður að Marteinn vinur minn hafi ekki spilað með Þrótti þennan leik því hann hefði eflaust aldrei náð að pissa í glasið, en hann á mjög erfitt með að pissa undir pressu. Líklegt þykir að framleiðendur Vogaídýfunnar vinsælu þurfi að endurskoða hráefnin sem þeir nota því svo virðist sem ídýfan spili stóran þátt í þessu svokallað stóra “lyfja”máli. Þórir Hauksson slapp einnig naumlega framhjá ÍSÍ en það eina sem þeir eflaust hefðu getað hankað hann á væri mikið magn af klamedíu í þvagi....

Það sem er þó skemmtilegast við þetta allt saman er að Lyfjaeftirlitið boðaði 4 í lyfjapróf hjá Þrótti, 2 leikmenn liðsins, sjúkraþjálfarann og svo vatnsberann. Sannkallað random check hjá þeim. Gunni Örn stórvinur minn þarf að fara að passa sig á því að Lyfjaeftirlitið mæti ekki á leik í körfunni, það væri nú saga til næsta bæjar ef sjúkraþjálfarinn yrði settur í 2 ára “keppnisbann”......sjeize


» 28 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 11:03:26 / helgid

Sleepy dog

Ja hérna hér.....

Þá er bara kominn mánudagur...again....

Helgin var mjög fín, rólegheit og bíó á laugardagskvöldið og svo horfði maður upp á sína menn skíta all verulega langt upp á bak og vil ég óska Arsenal mönnum nær og fjær til hamingju með sigurinn. Ég þakka guði fyrir að þessi leikur hafi ekki verið spilaður í hádeginu á laugardaginn því þá hefði helgin verið hálf ónýt hjá manni. Þó er maður nú farinn að róast aðeins í þessu og hættur að taka þessu svona alvarlega eins og hérna í denn. Það lýtur allt út fyrir að ég skuldi Sjabba eina koníaksflösku en litlar líkur á því að ég borgi hana, enda skuldar hann mér ennþá pening frá því ég var að panta fyrir hann á Ebay!

Það er alveg magnað hvað maður á hressa og “ barnalega “ vini. Ég fékk vægast sagt vafasaman tölvupóst fyrir um nokkrum dögum frá makaleit.is þar sem mér var tjáð að ég þurfti vinsamlegast að fara að greiða áskriftargjaldið til þess að prófællinn minn héldist inn á síðunni. Sem ég náttúrulega gerði (NOT – Borat).......Það skyldi þó aldrei vera að maður grípi til slíkra örþrifaráða í framtíðinni ef að samband mitt og Lóu fer versnandi, hver veit

Þá er það orðið alveg 100% klárt að ég kýs ekki Sjálfstæðisflokkinn í næstu Alþingiskosningum (hefði reyndar aldrei gert það) enda hef ég lítinn áhuga á að kjósa glæpamann í forsvar fyrir þjóðina. Að hugsa sér að þessi gæji getur orðið ráðherra.....eiginlega bara fyndið.

Svo er það bara 9.des næst á dagskrá hvað djamm varðar. Þá hittist gamli 2. flokkurinn eða allir peyjarnir sem maður spilaði með upp alla yngri flokkana í Kef. Verður vafalítið gaman að hitta allan hópinn enda langt síðan maður hefur hitt þá alla.

 

 



Að lokum vil ég svo þakka Þrífótnum fyrir að kommenta í mínu nafni á hinum og þessum bloggsíðum bæjarins. Ég held samt að ég sé fullfær að sjá um að kvitta sjálfur.....


» 12 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 10:52:43 / helgid

Kallinn í KLOBBANUM með gestapistil

Glaumur og gleði Skellti mér á skrall með Hefnernum og fríðu föruneyti sl helgi. Það var sullað í bachelor íbúð Hefnersins niðrí ómenningarbyggð háskólanema. Menn drukku óspart áfengan mjöð og töluðu um kellingar, fjármál og íþróttir. Þetta var sannkallað Brokeback Mountain party enda ekki kvenmaður í mílu radíus. Eigi að síður, góður félagsskapur og hressir piltar með húmorinn í lagi. Takk fyrir mig piltar.

Þröngt mega sáttir sitja en við Hefner sátum í rúmi hans, sem hann kallar Litla Anfield Road. Skil það ekki, því að hinn eini sanni Anfield er yfirleitt fullur af kellingum og fólk fer ánægt og fullnægt af þeim velli. Undirritaður hefur ekki skellt sér á skrall í Reykjavíkinni lengi, ekki síðan Skuggabarinn var og hét. Eftir mikla drykkju og gríðarlega skemmtilegt kvöld hélt mannskapurinn af stað niður í bæ. Hefnerinn var feskur að vanda enda kominn á markaðinn á nýjan leik eftir talsverða fjarveru. Það var ekki laust fyrir að spenningur væri í mannskapnum enda Hefnerinn með veiðistöngina klára. Klófesta átti eitt stykki pjásu ( helst rakaða ) Við skelltum okkur á Ölver ( Óliver ) sem fær nú ekki margar stjörnur í mínum kladda. Reyndar rann næstum af manni í röðinni þar sem við stóðum lengi með almúganum enda enginn merkilegur meðal oss. Matti reyndi að tala okkur inn í VIP röðina en Matti hefur fyrir löngu misst þann þokka sem einkenndi þetta grey á árum áður. Þykklega vaxnir dyraverðirnir hlógu dátt af Matta sem reyndi enn og aftur að þykjast vera Geir Ólafsson. Þetta voru dyraverðirnir ekki að kaupa enda Geir Ólafsson grannur og spengilegur maður. Matti kom sár og svekktur til okkar í röðinni en reyndi þó sitt besta. Gömul hjásvæfa Matta frá fyrri tíð mætti okkur svo þarna á götunni, þykk og ólystileg. Man ekki nafn hennar alveg en Hvalur9 hefði verið lukkulegur að draga hana inn Hvalfjörðinn, mikið stykki! Komumst loksins inn á staðinn. Þar var mikið fjölmenni sem samanstóð nú mestmegnis af kakóbrúnum töffurum og FM957 hnakkamellum. Við áttum ekki heima þarna nema þá hvað Hefnerinn, sem ætlaði svo sannarlega að krækja í eina lostafulla. Það var unun að fylgjast með honum, hreyfingarnar á dansgólfinu og taktarnir þegar hann var að tjatta þær upp í tugatali. Það gat ekki klikkað, ein þeirra beit á spúninn og Helgi dró hana varlega inn. Þetta var 18 ára stúlkuskinn frá Eskifirði, 30-40 punda bleikja. Hún var með fallegan vöxt niður að öxlum en þá fór að halla undan fæti. Rassgat hennar hafði sitt eigið póstfang og ökklar hennar eins og trjádrumbar. Þetta stoppaði Helga ekki enda klukkan að verða korter í fjögur og flestar meyjar farnar heim að lúlla..eða þá að láta troða í fjósið á sér. Helgi náði að plata hana með sér út, uppí leigubíl og heim í háskólaþorpið. Var reyndar ekki sáttur að borga 2980 kr í leigubíl en leigubílstjórinn rukkaði hann um þungaskatt!
Helgi vatt sér svo með hana inn og henti henni kylliflatri á litla Anfield. Það er óhætt að segja að the Kop hafi hrunið og litli Anfield ónothæfur. Ekkert varð úr þessu hjá þeim og þegar fór að renna af Helga missti hann kynferðislega þrá í dömuna. Hann sendi hana heim með taxa “collect” og læsti að sér dyrunum. Svaf í sófanum en var sáttur með afrakstur kvöldsins, hann fékk 2 ný númer og gat prísað sig sælan með það.

» 21 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 08:52:27 / helgid

Myndbönd

Með hjálp frá youtube.com þá tókst mér að henda inn tveimur alveg hörku myndböndum. Það fyrra er af mér á Þjóðhátíð í Eyjum 2005 og sýni ég svart á hvítu að kallinn er hörkudansari. Á seinna myndbandinu er Einsi Dan soldið pirraður, enda búinn með líter af kókómjólk :)

Þjóðhátíðarmynd

http://www.youtube.com/watch?v=JJlmPUwIxWs

Einsi soldið pirraður

http://www.youtube.com/watch?v=ecCQCGG5pjY

Ég heimta komment frá fólki og skrifa ekki pistil fyrr en ég fæ lágmark 300 komment eða eitthvað!


» 156 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 11:47:46 / helgid

Hvað er í gangi....

allt dottið út sem ég skrifaði í gær og eldri færslur......hvað er málið...nenni ekki skrifa þetta aftur en allavega eru á leiðinni 2 myndbönd inn á bloggið......Spurning um að skipta yfir á bloggar.is eða hreinlega hætta þessari vitleysu???

hvað segja menn við því? ég vil komment


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 15:02:19 / helgid

HM reglurnar

Núna fer Heimsmeistarakeppnin í fótbolta senn að hefjast! Ég við biðja allar eiginkonur og kærustur að lesa eftirfarandi reglur og virða þær :)

REGLURNAR:

1. Frá 9. júní til 9. júlí 2006 skaltu fylgjast vel með fréttum varðandi HM svo þú vitir hvað er að gerast á lokakeppninni í Þýskalandi. Þá getum við talað lítilega saman á meðan á lokakeppninni stendur þar sem ég mun ekki ræða um neitt annað en FÓTBOLTA.

2. Á meðan á lokakeppni HM stendur er sjónvarpið mitt – alltaf og án allra undantekninga.

3. Það er allt í lagi ef þú þarft að komast framhjá sjónlínu minni að sjónvarpinu svo lengi sem þú skríður eftir gólfinu og truflar mig ekki. Ef þér skildi detta í hug að standa nakin fyrir framan sjónvarpið farðu þá strax aftur í fötin þar sem ég mun ekki hafa tíma til að fara með þig til læknis fáir þú kvef.

4. Á meðan á leik stendur verð ég heyrnalaus, mállaus og blindur gagnvart þér nema ef til þess kemur að ég þurfi nýjan bjór eða eitthvað að borða.

5. Það er góð hugmynd fyrir þig að hafa alltaf alla vega tvær kippur af bjór vel kældar inni í ísskáp og nóg af snakki. Ef þú hagar þér vel fyrir framan vini mína máttu horfa á sjónvarpið frá klukkan 12 á miðnætti til 6 um morguninn ef það eru ekki neinar endursýningar á þeim tíma.

6. Ef þú sérð að ég er reiður eða pirraður þegar liðið mitt er að tapa viltu þá EKKI segja “þú jafnar þig – þetta er bara leikur” eða “ekki hafa áhyggur – þeir vinna kannski næst.” Ef þú segir þetta verð ég bara reiðari eða pirraðari. Mundu ávallt að þú munt aldrei vita meira um fótbolta en ég og svona setningar verða bara til þess að við skiljum fyrr.

7. Þú mátt horfa á EINN leik með mér og þú mátt tala við mig í hálfleik, en bara þegar auglýsingarnar eru og bara ef staðan er góð. Taktu líka eftir að ég sagði EINN leik, ekki reyna að nota lokakeppni HM sem einhverja hörmulega tilraun til að “eyða tíma saman”.

8. Endursýningar á mörkum eru mjög mikilvægar. Mér er alveg sama hvort ég hafi séð markið áður eða ekki, ég vil sjá það oft og mörgum sinnum í viðbót.

9. Segðu vinkonum þínum að eignast ekki börn á þessum tíma, ekki halda nein barnaafmæli eða aðrar fáránlegar veislur vegna þess að: a) ég mun ekki mæta b) ég mun ekki mæta og c) ég mun ekki mæta

10. En athugaðu, ef vinur minn bíður mér í heimsókn til að horfa á leik er ég rokinn.

11. Markaþættirnir í lok dagsins eru alveg jafn mikilvægir og leikirnir sjálfir. Ekki detta í hug að láta út úr þér setningu eins og “en þú hefur séð þetta áður” eða “af hverju skiptir þú ekki um stöð?” Lestu aftur reglu númer 2.

12. Og að lokum, sparaðu þér setningu eins og “Guðs sé lof af lokakeppni HM er bara á 4 ára fresti”. Ég heyri ekki þessa setningu enda tekur Meistaradeildin, Enski boltinn, Ítalski boltinn, Spænski boltinn og fleira við.

Takk fyrir að virða reglurnar.

Karlmenn um heim allan!


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 19:54:54 / helgid

Maybe somebody lost a turtle !

Jæja þá eru allar einkunnir komnar í hús og námslán ættu þá að fara að detta inn fljótlega. Þá er vorönninni bara formlega lokið. Núna er það bara BA ritgerðin í sumar. Er kominn með þetta fína vinnupláss upp í Odda og þar á maður eftir að eyða ófáu stundunum í sumar. Verður alveg lovely að geta stjórnað vinnutímanum sjálfur og enginn að hafa nein afskipti af manni.  Frjáls eins og fuglinn. Gunni Örn að gera glimrandi góða hluti í Thailandi og síðast þegar ég heyrði í honum var hann búinn að fara 9 sinnum í nudd og kominn með gott base tan. Svo fer HM að byrja þannig að sumarið er gulltryggt og virðist ekkert geta skemmt sumarið nema að veðrið verði út að skíta.

Það fer að detta inn gestapistill fljótlega frá Thailandi og þar getur fólk lesið nýjustu fréttirnir frá Gunnsanum...

Annars er bara löng helgi framundan og spurning hvort það verði ekki einhverju hent á grillið. Svo er spurning hvort maður mæti ekki á FH – Keflavík á mánudagskvöldið. Skora á Bóasinn að taka sláttuvélina þegar hann skorar seinna markið sitt í leiknum, en leiknum lýkur 1-3 fyrir Keflavík, en ekki hvað!


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.05.2006 18:16:05 / helgid

Bombubí tjúna

Hellúúúúú.....

Ég vil byrja á því að óska Árna Árna og öðrum Sjálfstæðismönnum til hamingju með sigurinn í gær í kosningunum. Þó svo ég sé engan veginn sáttur með þetta þá óska ég þeim nú samt til hamingju, enda tóku þeir hina flokkana í óæðri endann.

Ég var að vinna á fullu í Salaskóla í gæslunni í gær í tengslum við kosningarnar hérna í Kópavogi. Eftir það fór ég óvænt með Kidda í Vogana á kosningavöku hjá E-listanum, en Biggi bróðir hans skipaði einmitt fyrsta sæti á listanum þar. Það er óhætt að fullyrða að E listinn hafi spilað gott mót  enda fengu þeir 57,7 % atkvæða. Ég, Kiddi, Einsi Dan og Marteinn keyrðum svo til Reykjavíkur og fórum við Kiddi og Einar í röðina á Óliver meðan að Marteinn fór bara heim að sofa, enda vinna daginn eftir. Eftir klukkutíma bið var okkur loksins hleypt inn og þá fóru hlutirnir að gerast. Guðfaðirinn var með eina ungfrú ísland dömu upp á arminn og tókst mér að leggja inn gott orð fyrir strákinn ;)

 

 



Kristinn Tómasson knattspyrnuhetja úr Árbænum tók áskorun frá mér á Óliver og drakk fullt glas af kertavaxi með glæsibrag, ánægður með peyjann. Á Óliver mátti sjá þessa helstu kappa í dag....Raul einkaþjálfari var hress, Jói Fel var flottur í röðinni og Einsa Dan gerði gott!

 

 



Kvöldið var virkilega skemmtilegt og vonandi að fleiri slík líti dagsins ljós í sumar!


» 21 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 12:18:06 / helgid

Rassi litli

Þetta var nú meiri helgin!

Stóð til að sigra miðbæ Reykjavíkur á eurovisionkvöldinu en þau plön fóru rakleiðis ofan í klósettið (bókstaflega). Á föstudagsnóttina byrjuðu herlegheitin og stóðu yfir til sunnudags, þannig að helgin hjá mér fór í að liggja upp í rúmi og horfa á stöð 2 bíó! Nóg um það....

Það eru allir að fara til útlanda finnst mér, Sjabbi í USA og svo fer Hildur Halla stjúpsystir til USA á morgun ásamt því að Gunni Örn fer til Dk. En hann mun hefja sigurgönguna í Tailandi á næstu dögum.

Annars er það helst í fréttum að Bergþóra hans Kidda er að fara að keppa í Ungfrú Ísland núna á morgun og hvet ég alla til að fara á www.ungfruisland.is og kjósa hana! Hún er virkilega lagleg stelpan og hef ég alltaf sagt að Kiddi sé að spila langt fyrir ofan sína eigin getu J

 

 



Svo fer vonandi að styttast í þessa blessuðu einkunnir....

Þetta verður fínasta sumar held ég bara. Eva og Matti verða í Brúðkaupsþættinum JÁ ásamt því að koma fram í Innlit/Útlit. Hvað getur maður gefið svona fólki í brúðkaupsgjöf sem á allt? Einhverjar hugmyndir?


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 16:52:16 / helgid

Snooze

Ég var að hlusta á Fm 957 eins og ég geri svo oft þegar ég er á bílnum. Þá kemur lagið           “ Förum alla leið “ með hljómsveitinni Snooze. HVAÐ ER AÐ FRÉTTA???

 

 



Er þessi Brynjar Már alveg búinn að missa vitið? Fyrst gefur hann út íslenska þýðingu af laginu You´re beautiful með James Blunt...Því næst rappar hann í undankeppni Euruvision sem var algjör brandari og svo er hann ásamt tilvonandi eiginkonu sinni að fara að gefa út disk sem á einmitt að innihalda “ sumarsmellinn “ förum alla leið.....Ekki býst hann í alvörunni við að einhver kaupi þennan viðbjóð?

 

 



Nú hugsa eflaust margir....hvað er Hefnerinn að rífa kjaft! Hlustar á Westlife eins og kelling og hefur ekkert efni á að setja út Snooze...Westlife hefur allavega selt yfir 50 milljónir af diskunum sínum þannig að það hlýtur að segja eitthvað (back me up Árni Árni, Gunni Ástráðs og Íris J ) og þori ég að leggja talsverða upphæð undir að Snooze á ekki eftir að selja 50 diska! Hefur engin sagt honum að hann er gangandi brandari með skelfilega rödd?

 

 



Þetta lag fengi náttúrulega enga spilun ef að hann væri ekki að vinna á FM.....Hvað finnst fólki um þetta? Mun Marteinn fjárfesta í nýja disknum þeirra?


» 12 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 12:30:19 / helgid

Sumar

Sælar...

Ég held bara að sumarið sé komið, ekkert flóknara en það. Agalega fínt að sleikja sólina í Salalauginni og er ég kominn með gott base-tan. Vorönnin búin og þá er bara BA ritgerðin eftir sem ég skrifa í sumar. Þannig að það er bara útskrift í október þannig að ég mæli með að fólk fari að leggja markvisst fyrir mánaðarlega svo það geti gefið mér decent útskriftargjöf J .

 

 



Það er margt að gerast þessa dagana get ég sagt ykkur...það helst má nefna að

 

 



  • Gunzinn bindur miklar vonir við Tailensku skvísurnar. Það er ekki nema rúm vika í brottför....
  • Einsi Dan (Nenni níski) er víst ekki allur þar sem hann er séður þessa dagana. Hann þykir óvenju aðgangsharður í garð fallegra stúlkna þessa síðustu daga...
  • Marteinn og Eva eru víst á leiðinni í Brúðkaupsþáttinn JÁ í sumar....
  • Halli Axel fékk á dögunum verðlaunin “ Fríðastur meðal jafningja “ af íbúum í Heiðarhverfinu. Hann fékk um 76% atkvæða sem er ekki dónalegt...

 

 



Annars verður næsti laugardagur alveg magnaður held ég...grill – evróvision – djamm..getur það klikkað????

Nei maður smyr sig....


» 14 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 18:44:06 / helgid

Kanslarinn, tilkynning frá pabba hans Matta og spekúleringar um Íslandsmótið í tuðrusparki

Þá er Kanslarinn á leiðinni til Tælands…það er ekkert flóknara en það. Þar mun hann lifa eins og kóngur og fara í nudd á hverjum degi ásamt því að trylla dömurnar. Það er spurning hvernig þær tælensku verða þegar þær sjá íslenska víkinginn með ljósu lokkana, hel köttaðan og flottan. Ég hef nú þegar sent út viðvörunarbréf á heitustu skemmtistaðina í Bangkok enda á allt eftir að fara á hvolf þegar að Kanslarinn mætir. Eitt er þó víst að ég dauð öfunda kvikindið að vera fara til Tælands í 3 vikur…….

Pabbi hans Matta bað mig að koma með smá tilkynningu. Hún hljóðar einhvern veginn svona…

 Hann Marteinn minn hefur ekki sést síðan í gærkvöldi. Síðast þegar sást til hans var hann klæddur hvítum levis gallabuxum ásamt því að vera í grútskítugum H&M polo-bol(fjólubláum). Þeir sem geta gefið upplýsingar um kútinn minn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Lögregluembættið í Vogunum ekki seinna en strax

 

Svo fer Íslandsmótið í tuðrusparki senn að hefjast og verður sérstaklega spennandi að fylgjast með Keflvísku útlendingahersveitinni. Ég er nokkuð viss um að Ómar eigi eftir að taka sláttuvélina þó nokkrum sinnum í sumar enda er strákurinn orðinn vítaskytta hjá liðinu. Bói verður öflugur á hægri kantinum og tippa ég á besta tímabilið hans þrátt fyrir að hafa aldrei átt erindi sem erfiði í mig á 100 metrunum (sorry Bóas) . Ingvi (Red Pony) er allur að komast í gott form og sýndi hann víst lipra spretti á dansgólfinu á Traffic fyrir nokkrum helgum. Ekki var að sjá að ökklinn væri slæmur enda tók hann moonwalkið án teljandi vandræða. Ég trúi því að Staupi Tona verði með eindæmum góður í hægri bakverðinum í sumar. Ég tippa á 3 mörk hjá kappanum (eitt með skalla og tvö með vinstri) og 1 sjálfsmark. Nasi Nutcase (Claude Makélele) mun standa fyrir sínu, þrátt fyrir að eiga nokkra sentimetra í Makélele sjálfan (Bói fattar þennan, enda týpískur “ búningsherbergja húmor “). Ég ætla tippa á 3-5 sæti hjá Keflavík í sumar og Bói verður í liði ársins ásamt Jónasi.

 

Meira var það ekki

 

LaTeR


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18